Jólin…

Posted On desember 7, 2007

Comments Dropped 6 responses

jæja það styttist alltaf í jólin… Það er búið að vera alveg rosalega fallegt veður úti í dag. Snjór í trjánum og jólaskapið í algjöru hámarki. Fór í Kringluna til að klára jólagjafirnar, það var labbaður alveg heill hringur.. allar búðir nánast þræddar og ég labbaði út með límmiða! Hann er nú ekki gjöf heldur bara fyrir jólakortin. Átti svo notalega stund heima með jólalögin á, pakkaði inn og skrifaði í eitt jólakort.

Matarræðið gengur svona bara ágætlega. Er ekki alveg nógu sátt. En ég held ótrauð áfram. Mér finnst lífið bara eitthvað svo gott þessa dagana. Kannski er það vegna tilkomu allra ljósanna? eða bara sú staðreynd að það styttist í jólin, mér gengur vel í vinnunni og er loksins harðákveðin í að vinna baráttuna við auka kílóin!

Góða helgi og veriði duglegar :)

Ohhhhh

Posted On desember 5, 2007

Comments Dropped 4 responses

Ekki var ég ánægð með þetta! Fór á vigtina MÍNA í morgun. Hún sýndi 1,9 farin síðan síðasta þriðjudag. Fór því kokhraust í vigtun. Ánægð með mig bara en fannst ég samt eitthvað rosalega skrýtin í maganum.. get eiginlega ekki líst því. Bara á svona þremur tímum fannst mér koma steinn í magann á mér og ég var alveg að deyja bara. Skildi eiginlega ekkert í því (nema kannski að ég er að vandræðast með meltinguna eins og stundum þegar ég er að borða alveg hárrétt, held að það sér grænmetið).

Steig á vigtina og nei… -800g?? Ég var vægast sagt fyrir vonbrigðum. Skil þetta ekki. Svo er ég búin að vera hundómöguleg yfir þessu, búin að vera illt í maganum og skil ekki neitt í þessu. Eeeen það gengur ekki að vera með einhvern móral. Þetta voru þó 800g og þessi þyngsli geta bara þýtt að það fari enn meira næst!

Er ekki í neinu stuði og hálf fúl bara! :(

Á morgun kemur nýr dagur. Ég ætla mér vel yfir kg næst!

Allt í standi hér á bæ

Posted On desember 2, 2007

Comments Dropped 5 responses

Jæja, allt í góðu gengi hjá mér. Jólahlaðborð í gær með vinnunni. Frábært kvöld í alla staði og bara alveg rosalega vel heppnað. Jói og Sveppi að skemmta og tók ég alveg bakföll að hlátri :). Ég var komin snemma heim enda að vinna núna. Fékk mér í glas og borðaði það sem var í boði en ég ætla ekki að vera með samviskubit yfir því þar sem að beina brautin heldur áfram. Það væri annað mál ef að ég ætlaði í margrar daga sukk. Ekkert svoleiðis.

Á morgun er ég að spá í að gera mér hvítkáls súpu. Góð leið til að brydda aðeins upp á. Vigtun á þriðjudag. Ég er að hugsa um að reyna að fara á þriðjudögum bara. Svo er það nú mismunandi.

Ooog já krabbameinsskoðun á morgun :( Þarf að fara aftur þar sem að það var eitthvað ekki alveg eðlilegt síðast. Gaman hjá mér. Tíður gestur á leitarstöðinni. Wish me luck.

Gangi ykkur vikan vel og njótið aðventunar. Ég ætla gera það. Byrja að þrífa eldhúsinnréttinguna á morgun.

Bless í bili

Danskur.. Já takk

Posted On nóvember 28, 2007

Comments Dropped 3 responses

Ég er gjörsamlega pakksödd. Var að enda við að renna niður ljúfengri ýsu með soðnum gulrótum og rófum. Nammi namm… Ískalt vatn með. Þetta var alveg ótrúlega gott (þó ég segi sjálf frá). Gaman að segja frá því að ég var að sjóða ýsu í fyrsta skiptið heh en svo sannarlega ekki í það síðasta. Það er alveg á hreinu. Dagurinn í dag er búin að vera alveg pottþéttur. Örlar á smávegis höfuðverkur, líklega vegna sykur skorts! :)

Það er búið að skreyta allt í vinnunni hjá mér, seríur útum allt og kertaljós. Það er alveg ótrúlegt hvað ljósin hafa mikil áhrif á hugann. Það var æðislega notalegt að koma í vinnuna eldsnemma í morgun og sjá ljósin koma á móti manni.

Það er eitthvað óttalegt sull í matinn í vinnunni á morgun svoleiðis að ég ætla að fara í búðina á eftir og kaupa mér eitthvað til að hafa með. Ætli það verði ekki eitthvað jafn spennandi og gulrætur og skyr en ég ætla að bæta mér það upp annað kvöld með kjúkling og einhverju æðislega krassandi grænmeti. :)

Í kvöld bíður mín svo danskur kanilsnúður og ísköld fjörmjólk yfir Greys anatomy.

Ég hugsa að framvegis skrifi ég oftar hér inn. Finnst það halda mér við efnið og finnst gott að létta á hjarta mínu.

Spurning um að ath hvernig gengur hjá átaksbloggurum!

Bless í bili… :)

Live happily..

Posted On nóvember 28, 2007

Comments Dropped one response

Það er svo skemmtilegt að hugsa til þess þegar maður verður svaka Skutla með stóru S jáááh! Það er ótrúlegt hvað þessi eini ddv fundur gerði. Núna er ég tilbúin og læt sko ekki sjá mig vigtun eftir viku og hafa ekki lést neitt. Niður fer vigtin! Hún skal.

Ég er skuggalega þung. Best að hætta núna. Ég ætla ekki í þrjá stafi.

Getur einhver hjálpað mér með wordpress. Mig langar að búa til flokk með þyngdinni og setja inn myndir … :) Svona svo þið vitið aðeins meira um mig :)

Fyrsti dagur á morgun í átt að breyttum lífstíl!

Skutla 72kg here I come!! :)

Að viðurkenna fyrir sjálfum sér…

Posted On nóvember 26, 2007

Comments Dropped one response

Það er komin tími til að ég viðurkenni fyrir sjálfri mér að ég geti þetta ekki hjálparlaust. Hvað á þá að gera? Vola og væla? Eða ná sér í aðstoð?

Ég mæti á nýliðafund hjá þeim dönsku í Garðabæ á morgun. (þó að ég sé kannski ekki beint nýliði, gert þetta áður en samt sem áður ný byrjun)

Ég næ þremur vikum fyrir jól og 6 eftir jól þar til Tenerife tekur á móti mér og mínum.

Meira seinna.

100% í gær!

Posted On nóvember 21, 2007

Comments Dropped 4 responses

Þar kom að því. Alveg tipp topp dagur í gær hjá mér! Ánægð með það og það hvetur mig til að gera jafn vel í dag. Ekki vil ég sóa gærdeginum. Ég borðaði ddv pizzu í gær. Var að vinna og það var svoldið skemmtilegt að stelpurnar sem voru í mat með mér spurðu hvað ég væri eiginlega að borða svona girnilegt. Ég sagði þeim það og þær vildu endilega smakka. Ein besta pizza sem þær höfðu smakkað! :) Næsta spurning var: ,,mmm hvar keyptiru þessa?” 2 lítrar af vatni. Ég og klósettið vorum bestu vinir í allt gærkvöld! haha… en ég veit að ég er allavega að losa mig við. Bjúgurinn sem hefur safnast upp síðustu vikur er að skila sér og mér líður vel að vera komin aftur í holla fæðið.

Það er eitthvað svo fyndið hvað líðanin er fljót að breytast. Mér líður svo vel að vera búin að brjótast út úr hringnum mínum. Ég er að gera eitthvað í mínum málum. Svaf betur í nótt en ég hef lengi gert - gerði það reyndar að verkum að ég átti erfiðara með að fara fram úr í morgun en mikið rosalega var gott að sofa einu sinni vel. Vaknaði bara einu sinni en það var ekkert tiltökumál miða við oft áður. Afhverju leyfir maður sér að heimsækja sukkið þegar þetta líferni er í boði?

Sauðákrókur á morgun og er þess beðið með eftirvæntingu á mínu heimili. Afslöppun og göngutúrar með hundana og baaara meiri afslöppun. :) Það heyrist þá væntanlega ekki í mér fyrr en eftir helgina. Eins og áður sagði verður eitthvað um svindl en það var vitað og ég ætla ekki að kvelja mig á því því ég er ákveðin í því að á mánudag tekur ddv aftur við og ég hlakka bara til að taka heila 100% viku.

Bílinn fór í viðgerð í gær. 67 þúsund straujaðar á kortinu. Fjúff… en á móti kemurn nýsmurður bíll, nýjir bremsuklossar og diskar ásamt glænýjum nöglum! Ekki öðru þorandi á Holtavörðuheiði.

Þá er þetta orðið gott! :)

Sjáumst síðar

Ég…

Posted On nóvember 17, 2007

Comments Dropped 4 responses

Það er svo skrýtið að ég hef eiginlega ekki áttað mig á því hversu mikið ég hef fitnað. Það er eins og ég hafi lokað augunum fyrir sjálfri mér. Ég steig á vigtina og jú mér brá og ég upplifði fáranlega vanlíðan heilt kvöld, tók mig á í tvær vikur. -4 kg. Féll og hef ekki enn náð að standa upp. Þó að vigtin hafi sýnt skuggalega háa tölu þá var eins og þetta næði ekki inn til mín. Eins ég og vildi bara ekki trúa þessu. Hugsaði reynar bara með mér. Neiiih, þetta getur ekki verið. Kannski er það vegna þess að ég held að ég beri kg ekkert illa. En engu að síðar.. Vantaði svartar buxur um daginn þannig að ég opnaði fataskápinn, tók fram buxur sem ég var í síðast bara í júlí. Hef ekki notað þær síðan, verið mikið í pilsum og datt svo allt í einu ofan á þær. Ég skellti mér í buxurnar, viti menn, ég gat EKKI hneppt. Sem betur fer hafði ég ekki tíma til að leggja í volæðið. Gerði það svo viljandi í kvöld að taka fram öll fallegu fötin mín og máta. Jakki sem ég fór í einu sinni. Eitt kvöld á aðventukvöldi fyrir hmm tveimur árum. Þá var ég léttust 78 kg, þá á DDV á fullu. Ég man þetta kvöld svo vel þar sem að ég var í einmitt nýjum jakka og nýju pilsi, 10 kg léttari og ótrúlega ánægð með lífið og tekið var eftir því. Hrósin hrundu yfir mig. ,,Vá hvað þú lítur vel út!” ,,Þú geislar alveg!” og þar fram eftir götum. Ég tók fram jakkann áðan, gat ekki hreyft mig í honum, hvað þá hneppt honum. Við skulum ekkert fara út í það hvernig ég leit út í pilsinu, sem ég gat btw ekki hneppt. Mikið ógeðslega er ég þreytt á sjálfri mér í augnablikinu. Ohhh.. ég get bara ekki líst því. Ég trúi ekki að ég hafi brugðist sjálfri mér svona. Ég á þetta líf. Þetta eina líf og ætla ég virkilega að eyða því svona ótrúlega ónægð með sjálfa mig. Þetta er farið að hafa áhrif ekki bara á mig heldur margt annað í mínu lífi. Hvenær verður komið nóg? Ætla ég virkilega að bíða lengur? fitna bara og fitna. Mig dreymir um að fara í Vero Moda, 17, Whatever… og virkilega geta keypt mér eitthvað. Fyrst og fremst þá langar mig að vera ánægð með sjálfa mig. Ég velti því fyrir mér hvort að það sé nóg að rúlla kg af? Þar sem að ég hef haft þá þráhyggju að ég sé feit síðan ég man eftir mér. Ég var alltaf stært, þroskuðust, engan veginn feit, það sést á myndum, en ég æfði sund og myndir af mér á pallinu að taka við verðlaunum og ég held utan um magann? Ég held að svarið sé allavega ekki að liggja upp rúmi og éta snakk. Ég held að ég reyni núna. Ég vil þetta ekki lengur. Ég býð sjálfri mér ekki upp á þetta. Ég á eitt líf og ég ætla að lifa því.. hamingjusöm og ánægð með mig. Því ég er alveg ágæt. Er bara ekki nógu dugleg við að segja sjálfri mér það.

Í dag hélt var ég leiðbeinandi hjá krökkum í fermingarfræðslu, ég talaði við 100 krakka, um sama hlutinn, þau komu í fimm hópum. Mér var úthlutað svona spjalli um mismunandi hlutverk sem við förum í, grímur sem við setjum upp og svo lét ég krakkana segja 3 jákvæða hluti um sig. Mér fannst ég vera hálfgerður hræsnari að vera segja þeim að vera ánægð með sig og segja sér stundum að þau væru alveg ágæt þar sem ég á svo erfitt með það sjálf. Þannig að eftir að hafa talað í 4 klukkutíma þá ákvað ég að ég væri bara alveg ágæt!

Þetta er orðið gott. Ég er komin í gang aftur. Það verður þó að vera eitt svindl og það verður næstu helgi. Afmælisboð á Króknum og ég er búin að ákveða það en tilhvers að sóa þeim dögum sem á milli eru í sukk og svínarí þegar ég get verið að borða kg af mér…

Bless í bili…

Hvað er í gangi?

Posted On nóvember 3, 2007

Comments Dropped 4 responses

Hvað þýðir það þegar át og nammisjúklingar sem eru í átaki hætta að blogga? Held að við vitum það allar. Ég get alveg byrjað að þylja upp afsakanir um það afhverju ég er að klikka en til hvers? Lætur mér ekki líða neitt betur. Ég féll, harkalega og er að plástra mig saman. Ef ég á að kenna einhverjum um þá kenni ég sjálfri mér. Þetta hafði þó ekki mikil áhrif. 900 í plús. Þetta þýðir ekki. 7 vikur til jóla sem þýðir 7kg með miklu bústi! Sem þýðir að ég væri yrði komin undir 85 um jól. Væri það yndislegt.

Mitt markmið: Vera orðin 85kg fyrir jól.

Tenerife ferð 6 feb: komin í 7 tuginn!!

 Ég þoli ekki að hafa dottið úr gírnum en það gerðist hreinlega vegna vanlíðan. Ég svaf ekki, borðaði ekki og hafði mig ekki af stað. Núna stefni ég á göngutúra á kvöldin fyrir svefninn. Á að hjálpa mér að sofa og ef það er ekki göngutúr þá er að sundlaugin. Ég er vel synt svo ekki get ég borið fyrir mig að ég sé ósynt!

Ég býð sjálfri mér ekki upp á þetta mín lengur. Allt gekk svo vel og ég var svo ákveðin en svo gerist eitthvað. Það þarf svo lítið til að maður bara gleymir sér. En það sem skiptir mestu er að fallið varir ekki lengur en nokkra daga. Væri verra ef ég hugsaði með mér æj svo stutt í jólin að það tekur því ekki. Ég ætla 7kg fyrir jólin. ÉG ÆTLA! ég er að reyna að peppa mig upp. Þarf kannski smá aðstoð.

Sé að flestum gengur vel og það er á margan hátt peppandi en líka alveg óþolandi þegar mér gengur illa til að vera honest. Maður hugsar óvart ,,afhverju er ég ekki komin í 10kg múrinn?” ,,Afhverju get ég ekki verið svona hress og dugleg!”

Núna er bara að byrja að nýju. Losa mig við 900g fallið og meira til!

 Vona að þið droppið enn við!

Með kveðju frá nammisjúklingnum

Formlegur vigtunardagur! :)

Posted On október 17, 2007

Comments Dropped 8 responses

Nei, hér er ég. Alls ekki hætt. Fersk og fín og ákveðin í að láta helgina og lystarleysið ekki hafa áhrif á mig. Tók upp hreina og fína matardagbók í morgun, skrifaði allt réttilega niður sem ég lét ofan í mig við morgunverðarborðið. Fór í Hagkaup áður en ég mætti til vinnu og keypti þar bæði hádegis og kvöldmat þar sem að ég er í vinnunni yfir allan daginn. Fjúff. Keypti líka vínber og létt ab súrmjólk til að hafa um fjögur leytið þegar hungrið heimsækir mig.

Formleg vigtun fór fram rétt fyrir átta. Ég steig á vigtina og hún brosti við mér. 1,3 kg farin á viku. Síðan ég byrjaði hafa farið 2.8kg. Það er ansi gott þar sem að átakið hefur staðið síðan 8 okt. Maður verður sko aldeilis nettur þegar jólin renna í garð :)

Ég lét mynda mig í fyrradag haha, það var alveg hrikalega skemmtilega leiðinlegt ef þið skiljið mig. Gaman að horfa á mig og hugsa ,,Já, nei góða mín, aldrei aftur svona!” Ég set myndirnar inn þegar ég fatta hvernig ég á að gera það :) Öll hjálp vel þegin.

Ég finn strax breytingu á húðinni minni, hún er betri og bólur láta ekki sjá sig. Það er líklega uppskera þess að hætta súkkulaði áti. Skapið er líka betra, mér líður betur með sjálfa mig. Finnst skemmtilegra að standa fyrir framan spegilinn og mála mig og gera mig fína fyrir daginn. Var eiginlega alveg hætt að nenna því. Til hvers þegar maður hafði spikið skoppandi með sér allan daginn!

2.8 kg er bara byrjuninn. Áfram með okkur stelpur. Við erum alveg magnaðar að geta þetta.

Gangi ykkur vel

Maddit - alveg að frjósa í kuldanum í Reykjavík :)