Ohhhhh

Posted On desember 5, 2007

Comments Dropped 4 responses

Ekki var ég ánægð með þetta! Fór á vigtina MÍNA í morgun. Hún sýndi 1,9 farin síðan síðasta þriðjudag. Fór því kokhraust í vigtun. Ánægð með mig bara en fannst ég samt eitthvað rosalega skrýtin í maganum.. get eiginlega ekki líst því. Bara á svona þremur tímum fannst mér koma steinn í magann á mér og ég var alveg að deyja bara. Skildi eiginlega ekkert í því (nema kannski að ég er að vandræðast með meltinguna eins og stundum þegar ég er að borða alveg hárrétt, held að það sér grænmetið).

Steig á vigtina og nei… -800g?? Ég var vægast sagt fyrir vonbrigðum. Skil þetta ekki. Svo er ég búin að vera hundómöguleg yfir þessu, búin að vera illt í maganum og skil ekki neitt í þessu. Eeeen það gengur ekki að vera með einhvern móral. Þetta voru þó 800g og þessi þyngsli geta bara þýtt að það fari enn meira næst!

Er ekki í neinu stuði og hálf fúl bara! :(

Á morgun kemur nýr dagur. Ég ætla mér vel yfir kg næst!

4 Responses to “ Ohhhhh ”

  1. Þuríður

    Niður er niður! :D en kannski þarftu að bæta trefjum inn í matinn hjá þér og jafnvel bæta við fitu.. getur komið smá stífla ef það er ekki nóg af þessu!
    En þú ert samt búin að vera dugleg og það fer bara meira næst :D
    Gangi þér vel :D

  2. Mamma Madditar

    Það getur oft munað töluverðu frá morgni til kvölds. Það þarf ekkert að vera að marka þetta. Engan móral - bara áfram mín kæra.
    Mundu eftir markmiðunum - jólin og Tenerife í bikini.
    Bíttu á jaxlinn, bölvaðu í hljóði (það eru jú að koma jól) og spíttu í lófana. Mundu að mamma stendur alltaf með stelpunni sinni.
    “I believe in you, you know that!”

  3. Heiða

    Þetta er nú alveg flottur árangur; tæpt kíló! Svo eru þessar vigtir svo mismunandi. Ég myndi bara annað hvort reikna með að vigtin þín segi “rangt” í framtíðinni eða sleppa því að kíkja á hana fyrir vigtun :)

  4. Dídí

    Já bara nota eina vigt, annars er maður alltaf að svekkja sig. :)

    Mæli með sveskjum, aukinni olíu og Husk trefjum í hylkjum ef meltingin er að bögga þig. Einmitt sama vandamál í gangi hérna megin og fóru einmitt líka 800 grömm hér. ;)

Respond now.