Jólin…

Posted On desember 7, 2007

Comments Dropped 6 responses

jæja það styttist alltaf í jólin… Það er búið að vera alveg rosalega fallegt veður úti í dag. Snjór í trjánum og jólaskapið í algjöru hámarki. Fór í Kringluna til að klára jólagjafirnar, það var labbaður alveg heill hringur.. allar búðir nánast þræddar og ég labbaði út með límmiða! Hann er nú ekki gjöf heldur bara fyrir jólakortin. Átti svo notalega stund heima með jólalögin á, pakkaði inn og skrifaði í eitt jólakort.

Matarræðið gengur svona bara ágætlega. Er ekki alveg nógu sátt. En ég held ótrauð áfram. Mér finnst lífið bara eitthvað svo gott þessa dagana. Kannski er það vegna tilkomu allra ljósanna? eða bara sú staðreynd að það styttist í jólin, mér gengur vel í vinnunni og er loksins harðákveðin í að vinna baráttuna við auka kílóin!

Góða helgi og veriði duglegar :)

6 Responses to “ Jólin… ”

  1. Þuríður

    Þú ert að standa þig alveg ótrúlega vel! :D
    Gangi þér vel! :D

  2. Heiða

    Frábært að heyra :) Alltaf svo gott að finna þessa tilfinningu. Þú getur þetta sko alveg!

  3. Dídí

    Ohh já það verður allt svo yndislegt á þessum tíma!
    Merkilegt hvað maður getur rúntað um allar búðir eftir jólagjöfum en ekki keypt neitt… Ég skil þetta ekki, enda alltaf á að fara 7 ferðar í Kringluna, þá er ég loksins komin með allt. :P

  4. verdandifit

    Það er svo geðveikt að jólin séu að koma. Gangi þér ógeðslega vel að ná markmiðum þínum!

  5. Mamma Madditar

    Hvaða, hvaða…
    Engar nýjar tölur????
    Bíð spennt :)

  6. Þuríður

    Hæhæ..
    hvenær á að fara á fullt aftur?

Respond now.