Maddit?
mánudagur, október 8th, 2007
Maddit var ein af uppáhalds barnabókunum mínum. Fyrst var það maddit og svo Maddit og Beta. Þess vegna fannst mér vel við hæfi að hafa mitt nafn sem Maddit.
Ég er semsagt nýbyrjuð í átakinu eftir rúmt ár í “pásu”. Náði af mér góðum 10 kg og júú fékk þau að sjálfsögðu tvöfalt tilbaka. Nóg er nóg og núna á að taka til hendinni og verða alveg mega flott!
Ég er 20 ára og er komin með nóg af væli. Ég ákvað að hætta þessu væli og gera eitthvað í mínum málum. Datt í hug í leiðinni að blogga mér til stuðnings enda held ég að það haldi manni vel við efnið!
Auka kilóin eru orðin alltof mörg og hefst núna baráttan við bumbuna
Leave a response and help improve reader response. All your responses matter, so say whatever you want. But please refrain from spamming and shameless plugs, as well as excessive use of vulgar language.